Innlent

Fullkomnasta stjörnuskoðunarhús landsins við Hótel Rangá

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Fullkomnasta stjörnuskoðunarhús landsins hefur verið tekið í notkun fyrir ferðamenn á Hótel Rangá en þar geta gestir skoðað allan himingeiminn í gegnum tvo af fullkomnustu stjörnukíkjum landsins. Þakinu er rennt af húsinu áður en stjörnuskoðunin hefst.

Félagar í Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarnes undir forystu Sævars Helga Bragasonar, formanns  hafa aðstoðað Friðrik Pálsson, eiganda hótelsins og hans fólk á Hótel Rangá við að koma stjörnuskoðunarhúsinu upp og kaupa fullkomna stjörnukíkja í það.

„Þetta er hús með afrennalegu þaki, sem opnar bara allan himininn fyrir ofan okkur og gerir fólki kleift að stunda stjörnuskoðun við bestu mögulegar aðstæður  á Íslandi.  Við erum með tvo fyrsta flokks stjörnusjónaukar, spegilsjónaukar, sem leyfa manni að sjá hringana í kringum Satúrnus og fara milljónir ljósára út í geiminn og svona, þetta eru bara fyrsta flokks græjur, sem allir stjörnuskoðunaráhugamenn yrðu mjög öfundsverðir að eiga,“ segir Sævar Helgi.

Hann segir að nýja aðstaðan og staðsetning stjörnuskoðunarhússins sé fyrsta flokks.

„Myrkrið hérna er alveg fyrsta flokks og hérna blasir himininn við eins og hann gerist tignarlegastur á Íslandi og sem betur fer er mjög lítil ljósmengun hér í nágrenninu, þannig að það hjálpar verulega til,“ bætir Sævar Helgi við.

En hefur eigandi hótelsins, Friðrik Pálsson,  eitthvert vit á himingeiminum ?

„Nei, ég hef alveg verið sannfærður hingað til að þeir sem hefðu áhuga á þessu væru nördar sem kallað er, algjörir sérvitringar og ég er orðinn sannfærður um að þeir eru það,“, segir Friðrik. Hann hefur lengi selt norðurljósin á Hótel Rangá og nú eru það stjörnurnar, hvað næst ? „Ég veit það ekki, það kemur í ljós“, segir Friðrik og hlær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×